Árstíðirnar


Sítrónu- og súkkulaði terta

Kökur Vor

  • Auðvelt
  • Vegan: Já
  • Hráfæði: Já
  • Viðbættur sykur: Já
  • Mjókurlaust: Já
  • Eggjalaust: Já
  • Glútenlaust: Já

Uppskrift

Botn

  • 100 g kókosmjöl
  • 100 g hnetur, t.d. pekan eða möndlur
  • 30 g hreint kakóduft
  • 250 g döðlur

Byrjið á að setja hnetur, kókosmjöl, kakóduft og salt í matvinnsluvél og látið blandast saman og hneturnar malast. Bætið döðlunum útí og blandið þar til þetta klístrast vel saman. Þrýstið botninum niður í muffinsform, geymið í kæli/frysti meðan þið útbúið fyllinguna. 

Fylling

  • 3 dl kasjúhnetur, lagðar í bleyti í 1-2 klst
  • ½ dl kókospálmasykur
  • ½ dl hlynsíróp
  • ¾ dl kókosolía, fljótandi
  • 1 dl sítrónusafi
  • 1 msk sítrónuhýði
  • 2 tsk vanilla
  • smá sjávarsalt

Allt sett í blandara og blandað þar til silkimjúkt og kornlaust.
Hellið sítrónufyllingunni yfir botninn. 

Súkkulaði

  • ½ dl kakóduft
  • ¼ dl hlynsíróp
  • ¼ dl kakósmjör
  • ¼ dl kókosolía

Sett í skál og hrært saman með gaffli.
Hellið svo súkkulaðinu yfir sítrónufyllinguna og látið standa í frysti í 3 klst.


Kökurnar geymast best í frysti ef á að bjóða uppá þær seinna. Þá er gott að taka kökurnar úr frystinum tímanlega og leyfa aðeins að mýkjast áður en þið bjóðið uppá þessa dásemd.