Súkkulaði smákökur
- Auðvelt
- Vegan: Já
- Viðbættur sykur: Já
Uppskrift
Frábærar jólakökur fyrir þá sem eru hrifnir af súkkulaði. Bakaðar úr lífrænt ræktuðu hráefni.
- ⅔ b kókosolía (eða vegan smjör)
- 1 b hrásykur
- ½ b möndlumjólk eða önnur mjólk
- 2 tsk vanilla
- 1 b spelt, fínt malað
- 1 b spelt, gróft malað
- ½ b kókosflögur
- ½ b kakó
- 1 tsk lyftiduft
- 1 tsk matarsódi
- ¼-½ tsk sjávarsalt
- 200g súkkulaði, saxað
Setjið kókosolíu og kókospálmasykur í matvinnsluvél eða hrærivél og hrærið saman.
Bætið möndlumjólk og vanillu út í og blandið.
Blandið restinni af uppskriftinni saman og hrærið rólega út í.
Gott er að kæla deigið í ísskáp áður en kökurnar eru mótaðar, en það er ekki nauðsynlegt.
Mótið smákökur og setjið á bökunarpappír á bökunarplötu, hafið smá bil á milli því kökurnar breiða úr sér í ofninum. Þrýstið ofan á hverja köku með teskeið eða fingri.
Bakið við 190°C í 6-9 mín (aðeins misjafnt eftir ofnum og stærðinni á kökunum – fylgist bara með fyrstu umferð til að sjá hvað er passlega lengd).
Leyfið kökunum að kólna svolítið og stífna áður en þið smakkið. Kökurnar eru dásamlegar nýbakaðar.