Himneskur hafragrautur

Grautar

  • Vegan: Já
  • Hráfæði: Já
  • Mjókurlaust: Já
  • Eggjalaust: Já

Uppskrift

Þetta er frábær morgungrautur sem þarf ekki að elda heldur bara leggja í bleyti yfir nótt. 

  • 2 dl tröllahafrar eða haframjöl
  • 2 msk sesamfræ
  • 2 msk graskersfræ
  • 2 msk kókosmjöl
  • 2 msk rúsínur
  • 2 stk döðlur, smátt saxaðar
  • 2 stk lífrænar aprikósur, smátt saxaðar
  • Út á:
  • 1 dl ávextir í sneiðum
  • (t.d. epli, banani, mangó, bláber)
  • 1 dl möndlumjólk
  • 1 msk kakónibbur

Setjið allt í skál, hellið vatni út á, látið fljóta svona 2 cm yfir og látið standa yfir nótt. Hellið vatninu af og setjið allt í matvinnsluvél og blandið lauslega.
Setjið í skál ásamt ferskum ávaxtabitum, hellið möndlumjólk út á og stráið kakónibsum yfir. Þessi grautur geymist í 2 sólarhringa í ísskáp.