Kryddaður kaffidrykkur

Heitir drykkir Hristingar

  • 2 manns
  • Auðvelt
  • Vegan: Já
  • Hráfæði: Nei
  • Viðbættur sykur: Já
  • Mjókurlaust: Já
  • Eggjalaust: Já
  • Glútenlaust: Já

Uppskrift

  • 2 dl uppáhelt lífrænt kaffi
  • 3 dl mjólk að eigin vali
  • 1 msk kakóduft
  • 1 msk möndlusmjör
  • 1 msk hampfræ
  • 1 tsk lucuma
  • ½ tsk vanilla
  • ½ tsk möluð kardimomma
  • ¼ - ½ tsk chaga eða reishiduft (má sleppa)
  • ¼ tsk kanill

Allt er sett í blandara og blandað saman. Möndlusmjörið og lucuma gefa drykknum sætan keim. Ef þið viljið hafa drykkinn sætari má bæta við einni döðlu eða örlitlu hlynsírópi eða stevíudropa, eða þeirri sætu sem ykkur finnst best.