Súkkulaðismákökur með karamellu

Smákökur

  • Miðlungs
  • Vegan: Já
  • Viðbættur sykur: Já
  • Mjókurlaust: Já
  • Eggjalaust: Já
  • Glútenlaust: Nei

Uppskrift

Deigið

  • 1 dl kókosolía
  • 3 dl kókospálmasykur
  • 2 dl kókosmjólk eða önnur jurtamjólk
  • 1 dl kakóduft
  • ¼ tsk sjávarsalt
  • 1 tsk hjartasalt
  • 5 dl spelt (fínt og gróft til helminga)
  • 100 g dökkt súkkulaði, saxað (eða prófið að nota gula karamellu súkkulaðið - það er svakalega gott í þessa uppskrift!)

Setjið kókosolíu, kókospálmasykur og kókosmjólk í hrærivél, bætið restinni af uppskriftinni útí og klárið að hnoða deigið saman. Gott að láta hvíla inn í ísskáp í 20-30 mín, jafnvel lengur.

 

Sölt karamella

  • 3 msk möndlusmjör
  • ⅓ dl kókosolía

  • ½ dl sæta, t.d. hlynsíróp
  • 
1 tsk sjávarsalt

Allt sett í blandara og blandað vel saman, sett í krukku og inn í ísskáp í 15 mín til að láta stífna.

 

Aðferð

Þegar smákökudeigið er orðið aðeins stíft er auðvelt að móta pulsu úr deiginu og skera svo litlar kökur niður og setja á bökunarpappír. (Kökurnar eru betri litlar). Ýtið með þumlinum í miðjuna á hverri köku svo að myndist dæld í miðjuna, setjið doppu af karamellu ofan í dældina. Bakið við 190°C í 8-10 mín. Látið kólna á grind, þá verða þær stökkar og góðar. Kökurnar eru bestar örlítið volgar og nýbakaðar.

 Ef þið viljið hafa smákökurnar glútenlausar notið þið 4 ½ dl glútenlausa mjölblöndu og ½ dl möluð chiafræ í staðin fyrir speltið.