Fljótlegt chili
Okkur fannst chili-ið mjög gott með smá hrísgrjónum og salati, en það er líka tilvalið í tacos eða tortillur, með guacamole og tilheyrandi.
Njótið!
Rauðrófu chili sin carne
1 msk olía
1 laukur
3 hvítlauksrif
2-3 msk tómatpúrra
1 ferskur chili, smátt saxaður
1 glas grilluð paprika (150g)
1 krukka bakaðar baunir (lífrænar frá Himneskt)
400g rauðrófur, soðnar og rifnar (hægt að nota forsoðnar)
400g passata
1 msk sítrónusafi
1 msk chili
1 ½ tsk cumin
½ tsk reykt paprika
½ tsk oregano
1 tsk sjávarsalt
pipar
Hitið olíu í potti og mýkið lauk og hvítlauk í um 2-4 mín, eða þar til laukurinn byrjar að gyllast.
Bætið tómatpúrru og kryddi út í og hrærið vel saman.
Sigtið olíuna frá paprikunni og skerið paprikuna í minni bita og setjið út í.
Rífið soðnu rauðrófurnar á grófu rifjárni og setjið út í.
Bætið passata tómötunum út í ásamt sítrónusafa.
Látið sjóða við vægan hita í 8-10 mín.
Berið fram með avókadó, vegan sýrðum rjóma og ferskum kóríander.
Sumir kjósa líka að hafa hrísgrjón með.
Einnig hægt að bera fram í taco skeljum eða tortillum.
