French Toast
Þessi uppskrift er vegan, í staðinn fyrir egg notum við kókosmjólk, banana og chiafræ. Berum brauðið svo fram með himnesku hlynsírópi og ferskum berjum og nokkrum sjávarsaltkornum. Almennilegur lúxus!
Ekta helgartrít

- súrdeigsbrauðsneiðar, 8 meðalstórar eða 4 stórar
- 2 msk kókosolía til að steikja upp úr
- deig:
- 2 dl kókosmjólk
- 1 dl kókospálmasykur
- 1 þroskaður banani
- 1 msk chiafræ
- ½ tsk vanilla
- smá sjávarsalt
Setjið allt hráefnið í deigið í blandara og blandið saman (kókosmjólk, kókospálmasykur, banani, chiafræ, vanilla og sjávarsalt).
Dýfið brauðinu ofan í deigið, látið liggja í 15 sek á hvorri hlið (ef lengur getur brauðið orðið of blautt svo erfitt verður að fá stökka og girnilega húð á það).
Steikið brauðið í kókosolíunni á heitri pönnu, í um 2 mín á hvorri hlið.
Berið fram með ferskum berjum, hlynsírópi og nokkrum sjávarsaltkornum.
Njótið
