Gulrótarfranskar m/ ídýfu
Þessi tími árs, svona síðsumars, er í algjöru uppáhaldi hjá okkur mæðgum. Íslenska grænmetisuppskeran er mætt í búðirnar og það finnst okkur svo dásamlegt. Við þreytumst ekki á því að gera tilraunir með grænmeti, enda er það uppáhalds maturinn okkar.
Íslenskar gulrætur eru til dæmis sívinsælt snarl hjá krökkunum, við pössum að eiga alltaf nóg af þeim í ísskápnum. Þær eru einkar hentugur forréttur á meðan svangir munnar bíða eftir kvöldmatnum.
Um daginn gerðum við gulrótarfranskar úr stærstu gulrótunum í pokanum. Þær voru rosalega góðar, sérstaklega með dásamlegri ídýfu úr sýrðum hafrarjóma.
Gulrótarfranskar
- 3 stórar gulrætur, skornar í tvennt eftir endilöngu og síðan hver lengja í þrennt
- 1 msk jómfrúar ólífuolía, lífræn frá Himneskt
- 2 msk næringarger
- 2 tsk hvítlauksduft
- ½ tsk svartur pipar
- ½ tsk sjávarsalt
- ½ dl smátt söxuð steinselja
Skerið gulræturnar niður í passlegar lengjur og setið í skál.
Setjið restina af uppskriftinni út í og veltið gulrótunum upp úr.
Raðið á bökunarpappír á ofnplötu og bakið við 200°C í 12-15 mín
Ídýfa
- 2 msk sýrður hafrarjómi (oatly er mjög góður)
- 1 msk sítrónusafi
- ½ tsk nýmalaður svartur pipar
- ½ tsk sjávarsalt
Hrærið öllu saman.
Njótið !