Hafragrautur fyrir einn
Hafragrautur er sígildur morgunverður, enda hollur og bragðgóður. Hafið þið prófað að setja skeið af hnetusmjöri út á grautinn? Hvílíkur lúxus! Grauturinn verður saðsamari fyrir vikið og orkan endist aðeins lengur. Út á grautinn er gott að setja ávexti, t.d. epli, peru, banana, ber eða rúsínur.
Við notum lífrænt hráefni eins og hægt er, t.d. haframjölið, hnetusmjörið, rúsínurnar og þá ávexti sem fást lífrænir.
Þessi uppskrift miðast við einn, en mjög auðvelt er að stækka hana að vild.
Hafragrautur fyrir einn
- 1 dl lífrænt haframjöl
- 2 dl vatn
- ½ tsk kanill
- salt af hnífsoddi
- 2 tsk himneskt hnetusmjör, gróft
- 1-2 tsk rúsínur
- uppáhalds ávöxturinn þinn (t.d. epli, pera, ber eða banani)
- jurtamjólk að eigin vali
Setjið vatnið í pott og kveikið undir.
Bætið höfrunum út í ásamt kanil og salti.
Látið grautinn malla í 2-5 mín, eða þar til tilbúinn.
Passið að hræra í annað veifið svo grauturinn brenni ekki.
Setjið grautinn í fallega skál, stráið því sem hugurinn girnist yfir, ásamt vænni skeið af hnetusmjöri.
Hellið smávegis jurtamjólk út á og njótið!
