Hjónabands sæla
Hjónabands sæla er klassísk sumarkaka, enda nóg til af rabarbarasultu þessa dagana. Okkur finnst tilvalið að bjóða upp á eins og eina sneið af sælu með helgarkaffinu.
Við notum lífrænt ræktað hráefni eins og við getum, lífrænt spelt, haframjöl og kókospálmasykur. Og glænýja heimagerða rabarbara- og jarðaberjasultu.

Uppskriftin er ósköp einföld og þið getið hvort heldur notað heimagerða rabarbarasultu eða keypta.
Ef þið eigið rabarbara og viljið gera eigin sultu finnið þið uppskrift að heimagerðri rabarabara- og jarðaberjasultu hér.
Hjónabands sæla
- 200g spelt, fínt og gróft til helminga
- 200g haframjöl
- 175g kókospálmasykur
- 1 tsk lyftiduft
- ½ tsk sjávarsaltflögur
- ½ tsk kanill
- 200g smörbar smjörlíki, við stofuhita
- 1 msk vatn
- 2 dl rabarbarasulta
Setjið speltið, haframjöl, kókospálmasykur, lyftiduft, sjávarsaltflögur og kanil í hrærivélaskál og blandið saman.
Bætið smjörlíkinu út í og látið það blandast inn í mjölið.
Setjið vatnið út í til að ná deiginu saman.
Hitið ofninn í 180°C.
Smyrjið form með olíu eða smjörlíki.
Þjappið um ¾ hluta af deiginu í botninn, smyrjið sultunni ofan á og myljið restina af deiginu yfir.
Bakið í 35 mín við 180°C eða þar til sælan er orðin gullin brún og girnileg.
