Klassískar pönnukökur
Lífrænar og vegan
Þessar pönnukökur bragðast alveg eins og hefðbundnar langömmu pönnsur.

Deigið er ögn viðkvæmara en hefðbundið deig þar sem það er eggjalaust. Trixið er að setja deigið í blandara í ½ mínútu, þannig helst deigið vel saman.
Dásamlegar þunnar pönnsur

Pönnukökur
- 3.5dl spelt
- 5.5dl haframjólk
- 1 dl kalt kaffi
- 1 tsk vanilludropar
- ½ tsk sjávarsalt
- 2 msk kókosolía
- 3 msk kókospálmasykur
Setjið allt hráefnið í blandara og blandið í u.þ.b. 30 sek.
(Mikilvægt, ekki sleppa blandaranum, þetta er það sem heldur deiginu saman í staðinn fyrir eggin).
Setjið smá olíu á góða pönnukökupönnu eða non-stick pönnu.
Hellið svo deigi á pönnuna og veltið pönnunni fram og tilbaka svo deigið dreifist.
Bakið í 1-2 mín á hvorri hlið. Losið pönnukökuna vel með spaðanum allan hringinn áður en þið snúið. Þessar eru ögn viðkvæmari en þessar hefðbundnu.
Gott er að stafla pönnukökunum á disk og leyfa þeim að standa í smá stund, þær halda áfram að bakast í bunnkanum. Svo er bara að rúlla upp með sykri eða fylla með sultu og jurtarjóma eða öðru góðgæti.
Njótið!