Rófu taco
Rófu-taco er einn af okkar uppáhaldsréttum. Okkur finnst alltaf gaman að bjóða upp á réttinn í matarboðum, því hann kemur jafnvel hörðustu sælkerum á óvart. Hollt getur líka verið dásamlega gott!
Rófu-taco flokkast tæknilega sem hráfæðiréttur, því ekkert er eldað, bara blandað og skorið. En það er nú eiginlega aukaatriði í okkar huga, bragðið og áferðin tala sínu máli. Við notum stórar rófusneiðar sem stökkar skeljar, þær eru ótrúlega góðar. Skeljarnar fyllum við með bragðmiklu hnetukurli, nóg af guacamole og dásamlegum kasjúhneturjóma. Gott að bera fram með fallegu salati.
Best finnst okkur að nota mandólín til að skera stórar og fallegar íslenskar rófur í passlega þykkar sneiðar.
Rófutaco
- 2 stórar rófur
Kasjúhnetukrem
- 150g kasjúhnetur, lagðar í bleyti í 2 klst
- 4 msk límónusafi
- 1 msk næringarger
- ⅛ tsk hvítur pipar
- ¼ tsk sjávarsalt
- 120 ml vatn
Guacamole
- 2 avókadó, skorin í bita
- 2 msk rauðlaukur, saxaður
- 2 msk ferskur kóríander, saxaður
- 2 msk límónusafi
- 1 hvítlauksrif, saxað
- ½ tsk sjávarsalt
- smávegis svartur pipar
Hnetukurl
- 100 g valhnetur
- ½ tsk cumin
- ½ tsk laukduft
- ¼ tsk reykt paprika
- 1 msk tamari sósa
Aðferðin
Byrjið á að leggja kasjúhnetur í bleyti, u.þ.b. 2 klst áður en útbúa á matinn. Skeljar: Skerið rófurnar í þunnar sneiðar með mandólíni. Geymið í íláti með köldu vatni á meðan fyllingarnar eru útbúnar. (Eða útbúið fyllingarnar fyrst og skerið rófurnar síðast).Guacamole: Setjið avókadó í skál og stappið með gaffli. Bætið restinni út í og blandið með gafflinum.
Kasjúhneturjómi: Hellið íbleytivatninu af kasjúhnetunum þegar þær hafa legið í bleyti í u.þ.b. 2 klst. Setjið hneturnar í blandara ásamt hráefninu í uppskriftinni og blandið þar til silkimjúkt.
Hnetukurl: Setjið allt í matvinnsluvél og notið "pulse" takkann nokkrum sinnum, þar til allt hefur blandast saman en er ennþá svolítið gróft. (Ekki mauka í kæfu).
Samsetning: Beygið rófusneiðarnar í "U" til að mynda skeljar. Setjið 1 msk af hnetukurli í botninn, svo u.þ.b. 2 msk guacamole og svo kasjúrjóma efst. Til að halda skeljunum saman má nota bandspotta til að binda lauslega, en þess þarf ekki nauðsynlega.

Njótið í góðum félagsskap!