Vegan ostakaka m/súkkulaðihnetusmjöri
Uppskriftin er vegan og mest allt hráefnið fæst lífrænt frá Himneskt.
Þessa ostaköku væri snjallt að baka daginn áður og geyma í kæli.
Og bera síðan fram með fullt af ferskum berjum.
(Kakan geymist í kæli í allavega viku án berja, svo það er alveg óhætt að baka hana vel fram í tímann).Vegan ostakaka m/ súkkulaði og berjum
Botninn
- 75g haframjöl
- 100g malaðar möndlur eða hnetur
- 10 döðlur, smátt skornar
- 60g kókosolía
- ½ tsk sjávarsaltflögur
(ATH Munið að leggja kasjúhneturnar fyrir fyllinguna í bleyti í 2 klst áður en baksturinn hefst).
Setjið allt hráefnið í matvinnsluvél og maukið þar til þetta verður að klístruðu deigi.
Þjappið niður í smurt form sem er um 26 cm í þvermál. Gott að nota smelluform.
Forbakið við 160°C í 10 mín.
Látið kólna áður en fyllingunni er hellt yfir.
Fylling
- 150g kasjúhnetur, lagðar í bleyti í 2 klst
- 200g vegan rjómaostur
- 250g kókosmjólk
- 225g hlynsíróp
- 2 msk sítrónusafi
- 2 msk kókosolía
- 2 msk maizenamjöl
- 1 tsk vanilludropar
- ½ tsk sjávarsaltflögur
Hellið vatninu af kasjúhnetunum.
Setjið allt hráefnið í blandara og blandið þar til silkimjúkt. (Hægt að nota matvinnsluvél).
Hellið fyllingunni yfir forbakaða botninn og bakið við 160°C í 55 mín.
Látið kólna í a.m.k. 2 klst í kæli, en má geyma í kæli í viku þess vegna.
Ofan á
- Vegan súkkulaðihnetusmjör, helst lífrænt.
- (finnið tilbúið í heilsuhillunum EÐA búið til heimagert - uppskrift: Súkkulaði og heslihnetusmjör)
(hægt að nota sultu í staðinn fyrir nutella ef vill) - Fersk ber (t.d. hindber eða bláber eða jarðaber)
Raðið berjunum ofan á.
Njótið!!!
