Rauðrófu- og sætkartöflusúpa
- Auðvelt
- Vegan: Já
- Viðbættur sykur: Nei
Uppskrift
Það er kúnst elda rauðrófur án þess að jarðarbragðið komi í gegn. Það tekst einstaklega vel í þessari súpu. Það gerist einhver galdur þegar cumin og turmerik blandast við rauðrófurnar og sætu kartöfluna. Það má nota eingöngu kókosmjólk eða eingöngu vatn í súpuna en hún verður mýkri við að nota kókosmjólk og þess vegna finnst okkur best að hafa blönduna 1:1.
- 1 msk ólífuolía
- 1 rauðlaukur
- 2 tsk cuminduft
- ¾ tsk turmerik
- ½ - 1 tsk salt
- ¼ tsk cayenne pipar
- 3 meðalstórar rauðrófur
- 1 sæt kartafla
- 400 ml kókosmjólk
- 600 ml vatn
- ofan á:
- ristaðar kókosflögur
- kóriander, smátt saxaður
Byrjið á að skera rauðlaukinn í þunnar sneiðar, afhýða rauðrófurnar og sætu kartöfluna og skera í litla bita. Hitið olíuna í potti og mýkið laukinn í oíunni í um 10 mín, passið að hann brenni ekki. Kryddið og bætið restinni af uppskriftinni útí. Látið sjóða við vægan hita í um 45mín - 1 klst. Setjið súpuna í blandara og maukið. Berið fram með, ristuðum kókosflögum og ferskum kóríander.