Lummur
- Auðvelt
- Vegan: Já
Uppskrift
Ljómandi góðar og einfaldar lummur úr lífrænt ræktuðu speltmjöli. Tilvalið fyrir helgarkaffi.
- 250g spelt, t.d. fínt og gróft til helminga
- 2 tsk lyftiduft
- 1 tsk vanilla, dropar eða duft
- 1/2 tsk kardimomma, dropar eða duft
- 1/2 ltr mjólk að eigin vali
- 1 msk ólífuolía
- 2 tsk agave síróp
- smá salt
Gott er að láta deigið hvíla aðeins áður en lummurnar eru bakaðar á pönnu við meðalhita.