Berjadraumur

Ávextir Bakstur Haust Kökur

  • Auðvelt
  • Berjatid-4
  • Vegan: Já

Uppskrift

Í þessa berjapæju má nota ný bláber úr berjamó, eða rifsber, sólber og jarðaber úr garðinum, eða einfaldlega frosin ber úr búðinni. Frosin hindber eru einnig frábær kostur. Notið þau ber sem þið eigið eða eru í uppáhaldi. 

  • Berjablanda 450g ber (fersk eða frosin)
  • 200g kókospálmasykur (hægt að hafa meira eða minna eftir smekk)

  • Pæjudeig:

  • 100g lífrænt spelt
  • 140g haframjöl
  • 80g möndlur eða heslihnetur, malaðar
  • 90g kókospálmasykur
  • 1 tsk kanill
  • 1 tsk sjávarsalt
  • 120 ml kókosolía
 (eða smjör, t.d. vegan)

Setjið ber og sykur í pott, stillið á háan hita og hrærið stöðugt í um 1 mín.
Takið pottinn af hellunni og hrærið aðeins.


Deigið:

Setjið þurrefnin fyrir deigið í skál og blandið.
Bætið kókosolíunni/smjörinu út í og hnoðið þar til deigið klístrast saman.
Takið frá ¼ af deiginu fyrir mulning.
Þrýstið ¾ af deiginu í botninn á 23 cm kökuformi.
Hellið berjablöndunni yfir botninn.
Myljið restina af deiginu yfir.
Bakið í miðjum ofni á blæstri við 190°C í 20 - 25 mínútur.
Gott er að leyfa pæjunni að kólna aðeins og stífna áður en þið njótið hennar með góðum ís eða rjóma.