Frönsk súkkulaðikaka
- Auðvelt
- Vegan: Nei
- Hráfæði: Nei
- Viðbættur sykur: Já
Uppskrift
- 100 g smjör
- 100 g kókosolía
- 300 g 71% lífrænt súkkulaði
- 4 stk lífræn egg
- 1 dl hrásykur
- 2 msk hlynsíróp
- 50 g fínt malaðar heslihnetur
- 50 g spelt, fínmalað
- Til skreytingar:
- lífrænn flórsykur – ef vill
- fersk ber
Bræðið smjörið, kókosolíuna og súkkulaðið saman yfir vatnsbaði. Þeytið saman egg, hrásykur og agave. Blandið súkkulaðiblöndunni saman við eggjablönduna. Blandið saman fíntmöluðum heslihnetum og spelti og blandið síðan varlega saman við súkkulaði/eggjablönduna, gott að nota sleikju eða sleif. Klæðið 26 cm springform með bökunarpappír og látið deigið í. Bakið við 180°C í 20 mín. Ef þið notið minna form þá verður kakan þykkari og þarf aðeins lengri bökunartíma. Kakan á að vera ,,blaut” og þarf að fá að standa í allt að 1 klst áður en hún er skorin. Ef hún er ofbökuð þá hverfur franski galdurinn, en verður engu að síður ágætis súkkulaðikaka. Ef vill þá stráið flórsykri yfir kökuna og skreytið með ferskum berjum.
- Næsta færsla
- Fyrri færsla