Hindberja ís

Ís Vetur

  • Auðvelt
  • vegan hindberja ís vegan jólaís desert
  • Vegan: Já
  • Mjókurlaust: Já
  • Eggjalaust: Já

Uppskrift

Þessi ljúffengi og ferski hindberja ís er frábær eftirréttur eftir góðan mat.

Mjög einfaldur og fljótlegur að útbúa.

  • 350g frosin hindber
  • 50g hrásykur
  • 150 ml rjómi, t.d. vegan rjómi
  • 1 tsk vanilludropar
Byrjið á að setja frosin hindber í matvinnsluvél ásamt hrásykrinum, ýtið á “pulse” nokkrum sinnum.

Bætið vegan rjómanum og vanilludropunum útí og klárið að blanda þar til ísinn
verður kekklaus.

Setjið í form og inní frysti í ca 30-60 mín. Þá er ísinn tilbúinn og auðvelt að
nota kúluskeið til að skammta hann. Ef ísinn frýs í gegn, þá er gott að skera hann í sneiðar þegar borinn er fram.