Kryddaðar perur

Ávextir Haust

  • 4 manns
  • Auðvelt
  • Volgar og mjúkar engiferperur
  • Vegan: Já
  • Viðbættur sykur: Nei
  • Mjókurlaust: Já
  • Eggjalaust: Já
  • Glútenlaust: Já

Uppskrift

Volgar og mjúkar engiferperur eru tilvalinn hversdags eftirréttur. Dásamlegar bornar fram með þeyttum rjóma eða smá ís. Og jafnvel söxuðum möndlum eða hnetum til að strá yfir. 

  • 4 perur, vel þroskaðar (lífrænar ef til) 
  • 2½ dl eplasafi 
  • 2-3 msk engiferskot 
  • 5 grænar heilar kardemommur 
  • 1 kanilstöng (eða ½ tsk kanill) 
  • 1 lítil appelsína eða mandarína (helst lífræn)
Skerið perurnar í tvennt, kjarnhreinsið og afhýðið. 
Skerið appelsínuna/mandarínuna í sneiðar þvert á ávöxtinn. 
Setjið eplasafa í pott ásamt engiferskoti, kardemommum og kanil. 
Látið suðuna koma upp, leggið appelsínusneiðarnar í botninn og raðið síðan perunum ofan á þær, látið sárið snúa niður. 
Látið perurnar sjóða við vægan hita í um 20 mín, án loks. Gott er að taka stóra skeið, halla pottinum og ná smá safa í skeiðina til að hella yfir perurnar, kannski svona 2 sinnum. 
Berið fram með rjóma eða góðum ís, t.d. jurtarjóma eða jurtaís. Njótið!