Sólberjakökur m hvítu súkkulaði

Bakstur Haust Kökur

  • Miðlungs
  • Sólberja og rauðrófukaka
  • Vegan: Já

Uppskrift

Þessar mjúku kökur með hvítu súkkulaði og sólberjum eru dásamlegar volgar úr ofninum. Til að fá smá jafnvægi í kökurnar notum við líka tófú og rauðrófur, en hvíta súkkulaðið, sólberin og kryddin gefa samt sem áður bragðið.

Sultan sem er notuð getur verið heimagerð eða keypt, má vera annarskonar sulta en sólberjasulta. Mjög gott er að hella smávegis af sólberjasultu yfir kökurnar þegar þær eru bornar fram.


  • 150g tófú
  • 100g hrásykur eða kókospálmasykur
  • 200g spelt, t.d. fínt og gróft til helminga
  • 1 tsk lyftiduft
  • 50 ml plöntumjólk að eigin vali
  • 1 rauðrófa, soðin
  • 2 vænar msk sólberjasulta eða önnur góð sulta
  • 1 tsk vanilludropar
  • ½ tsk kanill
  • ¼ tsk kardemommur, malaðar
  • ¼ tsk sjávarsaltflögur
  • 1 plata hvítt vegan súkkulaði
Setjið allt nema súkkulaðið í matvinnsluvél og maukið saman.

Hitið ofninn í 180°C.

Smyrjið lítil form og setjið um 60 ml (4 msk) af deigi í hvert form. (U.þ.b. 6 form, með um 7cm þvermál)

Brjótið súkkulaðið í litla bita og stingið 4 bitum ofan í formin og hyljið með deigi.

Bakið í 20 mínútur, takið kökurnar úr forminu og bakið áfram í 5-10 mín.

Þegar um 3 mín eru eftir af bökunartímanum setjið þið 1 súkkulaði bita ofan á hverja köku.

Takið kökurnar út og dreifið úr súkkulaðinu svo það myndi krem.

Ef vill má skreyta kökurnar með ferskum berjum eða góðri sultu.

Njótið!