Berjadraumur

Ávextir Bakstur Haust Kökur

  • Auðvelt
  • Berjatid-4
  • Vegan: Já

Uppskrift

Í þessa berjapæju má nota rifsber, sólber og jarðaber úr garðinum, eða einfaldlega frosin ber úr búðinni, t.d. góða berjablöndu.

  • Berjablanda 450g ber (fersk eða frosin)
  • 200g hrásykur (hægt að hafa meira eða minna eftir smekk)

  • Pæjudeig:

  • 100g lífrænt spelt
  • 140g haframjöl
  • 80g möndlur eða heslihnetur, malaðar
  • 90g hrásykur
  • 1 tsk kanill
  • 1 tsk sjávarsalt
  • 120 ml kókosolía
 (eða smjör, t.d. vegan)

Setjið ber og sykur í pott, stillið á háan hita og hrærið stöðugt í um 1 mín.
Takið pottinn af hellunni og hrærið aðeins.


Deigið:

Setjið þurrefnin fyrir deigið í skál og blandið.
Bætið kókosolíunni/smjörinu út í og hnoðið þar til deigið klístrast saman.
Takið frá ¼ af deiginu fyrir mulning.
Þrýstið ¾ af deiginu í botninn á 23 cm kökuformi.
Hellið berjablöndunni yfir botninn.
Myljið restina af deiginu yfir.
Bakið í miðjum ofni á blæstri við 190°C í 20 - 25 mínútur.
Gott er að leyfa pæjunni að kólna aðeins og stífna áður en þið njótið hennar með góðum ís eða rjóma.