Kókoskúlur m appelsínu

Sælgæti

  • Auðvelt
  • Kókoskúlur með appelsínu
  • Vegan: Já
  • Mjókurlaust: Já
  • Eggjalaust: Já
  • Glútenlaust: Já

Uppskrift

Kókoskúlur eru frábært nammi sem gott er að eiga með kaffinu. Gaman og einfalt að búa til með krökkum.

  • 4 dl döðlur
  • 2 dl kókosmjöl
  • 3 msk hreint kakó
  • ½ dl kókosolía
  • 1 tsk appelsínudropar
  • rifinn appelsínubörkur af einni appelsínu
  • auka kókosmjöl til að velta uppúr

Setjið döðlur, kókosmjöl, kakó, kókosolíu og appelsínudropa í matvinnsluvél og blandið þar til orðið að mauki. Bætið nú helmingnum af appelsínuberkinum út í og blandið létt.

Gott er að geyma deigið í kæli í smástund áður en kúlurnar eru mótaðar.

Veltið kúlunum upp úr kókosmjöli og rifnum appelsínuberki.

Kúlurnar geymast vel í kæli eða frysti.