Hummus m krydduðum baunum

Hummus og álegg

Uppskrift

Kryddaðar stökkar kjúklingabaunir og ferskir granateplakjarnar ásamt ferskum kryddjurtum gera þennan hummus alveg ómótstæðilegan. Hummusinn er silkimjúkur, kjúklingabaunirnar gefa gott bit, granateplakjarnarnir smá sætu og kryddjurtirnar himneskt bragð.

Berið til dæmis fram með heitu pítubrauði, eða grófu rúgbrauði, ásamt fersku eða bökuðu grænmeti.

  • Kryddaðar kjúklingabaunir

    1 krukka kjúklingabaunir
  • 1 ½ tsk cumin
  • 1 ½ tsk oregano
  • 1 ½ tsk reykt paprika
  • 1 ½ tsk hvítlauksduft
  • 1 tsk sjávarsaltflögur
  • 2-3 msk Himnesk jómfrúar ólífuolía

  • Hummus

  • 1 krukka kjúklingabaunir
  • safi og hýði af 1 sítrónu
  • 1 hvítlauksrif
  • 120ml vatnið af kjúklingabaununum
  • 100g tahini
  • 1 tsk sjávarsaltflögur
  • 1 tsk zatar
  • 1 msk Himnesk jómfrúar ólífuolía

  • Toppings

  • Granateplakjarnar
  • ferskur kóríander
  • fersk minta
  • fersk steinselja
  • Zatar
  • ólífuolía ef vill


Fyrir kryddaðar stökkar kjúklingabaunir:

Hitið ofninn í 180°C og setjið bökunarpappir á ofnskúffu.

Hellið vökvanum af kjúklingabaununum og setjið baunirnar í skál ásamt restinni af uppskriftinni, blandið saman og setjið á ofnskúffuna.

Bakið í 15-20 mínútur eða þar til þær eru orðnar stökkar.

Takið út og látið aðeins kólna.



Fyrir hummus:

Sigtið kjúklingabaunirnar og geymið vökvann.

Setjið alla uppskriftina í matvinnsluvél og maukið þar til alveg silkimjúkt.

Setjið hummusinn á disk, krydduðu kjúklingabaunirnar þar ofan á og toppið með granateplakjörnum, ferskum kryddjurtum og zatar og meiri ólífuolíu ef vill.

Gott að bera fram með góðu brauði eða grænmeti.