Kartöflusalat

Salöt og grænmeti

Uppskrift

Frábært að nýta nýjar íslenskar kartöflur í þetta kartöflusalat með ólífuolíu dressingu.

  • 900g kartöflur
  • 1 rauðlaukur, þunnt skorinn
  • 2 hvítlauksrif, söxuð 
  • 4 msk kapers, frá Himneskt
  • 10 góðar ólífur, takið steinana úr
  • handfylli steinselja 
  • 6 myntublöð, smátt söxuð 
  • salt og pipar
  • Dressing
  • 1 dl jómfrúar ólífuolía, lífræn
  • 1 msk sítrónusafi 
  • 1-2 tsk sinnep, frá Himneskt

Sjóðið kartöflurnar (ca 15-20 mín - eða þar til soðnar, tíminn fer eftir stærð og aldri). Okkur finnst gott að slökkva undir rétt áður en kartöflurnar eru tilbúnar, setja lokið á og leyfa þeim að standa í smá stund í pottinum.

Steikið rauðlaukinn og hvítlaukinn á pönnu.

Blandið ólífuolíu, sítrónusafa og sinnepi í skál.

Skerið kartöflurnar í fernt og hellið dressingunni út á.

Setjið restina af hráefninu út í. Steikta laukinn, kapers, ólífur, kapers, kryddjurtir og salt og pipar.

Njótið!