Valhnetu kaffi kaka

Kökur Vetur

  • Miðlungs
  • valhnetu og kaffi kaka
  • Vegan: Já
  • Eggjalaust: Já

Uppskrift

Þessi kaka er mjög góð með kaffinu. Við notum döðlur, valhnetur, ólífuolíu, gríska jógúrt, spelt og fleira gott hráefni í kökuna. Svo hellum við kaffiglassúr yfir áður en hún er borin fram.

  • Kakan
  • 200g döðlur, skornar í litla bita 
  • 150 ml sterkt kaffi, heitt 
  • 1 dl ólífuolía  
  • 1 dl grísk jógúrt (t.d. frá sojade) 
  • 1 tsk vanilludropar 
  • 100g púðursykur  
  • 225g spelt  
  • 1 tsk lyftiduft  
  • 1 tsk matarsódi 
  • ½ tsk sjávarsaltflögur 
  • 100g valhnetukjarnar, þurristaðir, saxaðir (geymið 5 heila kjarna til að skreyta með)
  • Krem 
  • 2 b flórsykur 
  • 5 msk smjör, t.d. jurtasmjör
  • 3 tsk instant kaffiduft 
  • 3 msk sjóðandi vatn

Setjið niðurskornar döðlur, kaffi, ólífuolíu, jógúrt og vanilludropa í blandara/matvinnsluvél og blandið/maukið saman.

Blandið þurrefnunum saman og hellið síðan döðlublöndunni út í og blandið varlega saman. 

Setjið bökunarpappír í brauðform, hellið deiginu í og bakið við 175°C í 50-55 mín.

Fyrir kremið:
Leysið instant kaffduftið upp í sjóðandi vatni, setjið flórsykurinn í hrærivélaskál og bætið smjörinu og kaffinu út í og hrærið saman. 

Bætið meira vatni út í ef með þarf. 

Smyrjið kreminu á kökuna og skreytið með heilum, ristuðum valhnetukjörnum.