Tahini bliss

Haust Heitir drykkir

  • 1 manns
  • Auðvelt
  • Tahini bliss
  • Vegan: Já
  • Mjókurlaust: Já
  • Eggjalaust: Já
  • Glútenlaust: Já

Uppskrift

Ljúfur og vermandi tahini drykkur, góður þegar aðeins er farið að kólna í veðri. 

Þessi drykkur er mjög einfaldur, aðal uppistaðan er tahini og heitt vatn. Svo bætum við döðlum út í til að sæta og þeim kryddum sem við eigum til hverju sinni. Það má sem sagt sleppa einhverjum kryddum, en drykkurinn er auðvitað bestur vel kryddaður. 

  • 1 msk tahini 
  • 1-2 lífrænar döðlur 
  • 1 tsk kakóduft 
  • ⅛ tsk kanill 
  • ⅛ tsk vanilla 
  • 1 kardimomma, fræin innan úr belgnum (eða 1/16 tsk möluð kardimomma) 
  • túrmerik af hnífsoddi 
  • nokkur korn svartur pipar 
  • 1½ dl heitt vatn
Hitið vatn í katli. Setjið tahini, döðlur, kakóduft og krydd í blandarann. Hellið vatninu út í og blandið þar til silkimjúkt.

Ef þið eigið ekki öll kryddin er alveg hægt að útbúa einfaldari drykk og sleppa einhverjum kryddum. Aðal atriðið er að blanda saman tahini, döðlu, kakódufti og heitu vatni og svo þeim kryddum sem þið eigið til. 
Einnig er hægt að nota möndlusmjör í staðinn fyrir tahini.