Kínóa salat

Skálar

  • Auðvelt
  • Kínóa salat
  • Vegan: Já

Uppskrift

Þetta salat er bæði gott sem meðlæti, eða eitt og sér sem máltíð í góðu jafnvægi.

  • 1 bolli kínóa
  • 2 bollar sjóðandi vatn
  • 1 tsk sjávarsalt 
  • 1 tsk grænmetiskraftur 
  • 1 dós soðnar kjúklingabaunir, vökvanum hellt frá og baunirnar skolaðar
  • 200g kirsuberjatómatar, skornir í 4
  • ½ agúrka, skorin í litla teninga
  • 1 rauð paprika, kjarnhreinsuð og skorin i litla teninga
  • ½ rauðlaukur, afhýddur og skorinn í litla teninga
  • ½ granatepli, kjarnarnir 
  • 100g mangó, skorið í litla teninga (má nota frosið)
  • safi og rifið hýði af 1 sítrónu
  • 15 g ferskur kóríander
  • 10 g fersk minta
  • smá sjávarsalt
  • 2 msk ólífuolía
Setjið kínóað í pott, kveikið undir og þurristið í 2-3 mínútur og hrærið stöðugt svo það brenni ekki.

Hellið sjóðandi vatni yfir kínóað, saltið og bætið grænmetiskraftinum út í og látið sjóða í um 15-20 mín.

Slökkið undir og látið standa með loki í um 10 mín.

Á meðan kínóað sýður, skerið niður allt grænmetið og ávextina og setjið í skál ásamt kjúklingabaunum, sítrónusafa og hýði, ólífuolíu, salti og kryddjurtum.

Þegar kínóað er tilbúið, bætið því út í og blandið saman.

Njótið!