Berjahristingur m hörfræolíu
- Auðvelt
Uppskrift
Mildur og góður hristingur með berjum og hörfræolíu.
- ½ banani
- 2 dl jurtamjólk, t.d. möndlumjólk
- 2 dl frosin bláber eða hindber
- 1 msk próteinduft (ef vill, má sleppa)
- 1-2 tsk hörfræolía frá Nyborggaard
- má bæta við lúku af spínati ef vill
Setjið allt innihaldið í kröftugan blandara og blandið vel.
Hristingurinn er bestur nýblandaður.