Grænn smoothie
- Auðvelt
- Vegan: Já
- Hráfæði: Já
- Viðbættur sykur: Nei
Uppskrift
- 10 möndlur
- 3 dl vatn
- ½ avókadó
- 1 msk engiferskot
- 1 msk sítrónusafi
- 1 banani (má vera frosinn)
- 1 lúka spínat
- 1 tsk - 1 msk hörfræolía
Blandið öllu nema avókadó og hörfræolíu saman í blandara. Bætið svo avókadóinu og olíunni við og klárið að blanda þar til orðið silkimjúkt og kekklaust.