Rauður sjeik
- Auðvelt
- Vegan: Já
- Hráfæði: Já
- Viðbættur sykur: Nei
Uppskrift
- 1 stk appelsína, afhýdd
- 1 stk epli, kjarnhreinsað og skorið í litla bita
- 1 stk rauðrófa, afhýdd og skorin í litla bita
- 2 tsk engiferskot
- 1 stk sítrónugras, skorið í þunnar sneiðar (má sleppa)
- 1 tsk límónuhýði
- ½ dl kasjúhnetur
- 2 msk hampfræ
- 3 dl kókosvatn
Allt sett í blandara og blandað saman. Hægt að bæta meiri vökva út í ef ykkur finnst hann of þykkur.