Graskers salat
- Vegan: Já
Uppskrift
Frábært meðlæti.
Páskasalat
- ½ grasker, afhýtt og skorið í bita
- 1 tsk garam masala
- ¾ tsk sjávarsaltflögur
- 1 msk ólífu eða kókosolía
- 1 sæt kartafla, afhýdd og skorin í bita
- 1 tsk karrý
- ¾ tsk sjávarsaltflögur
- 1 msk ólífuolía
- 50 g spínat
- 10 ólífur
- 1 dl granateplakjarnar
- 2 – 3 msk dukkah
Dukkah
- 3 dl ristaðar heslihnetur
- 1 dl ristuð sesamfræ
- 1 dl ristuð graskerjafræ
- 1 dl ristað kókosmjöl
- 2 msk kóríanderfræ
- 2 msk cuminfræ
- ½ msk fennelfræ
- 1 tsk svört piparkorn
- 1 tsk sjávarsaltflögur
Páskasalat leiðbeiningar
Hitið ofninn í 180°C.
Setjið bökunarpappír á ofnpötu, látið graskerjabitana öðrum megin og sætkartöflubitana hinum megin.
Kryddið samkvæmt uppskrift og skvettið olíu yfir.
Bakið í 15-20 mín eða þar til grænmetið er gegnum bakað.
Setjið spínat í skál, bakaða grænmetið yfir ásamt granateplakjörnum og ólífum.
Blandið létt saman og stráið dukkah yfir (sjá uppskrift).
Dukkah leiðbeiningar
Hitið ofninn í 180°C.
Setjið allt nema saltið á ofnplötu og þurrristið í 6 mínútur.
Látið kólna í 5 – 10 mín.
Allt sett í matvinnsluvél og grófmalað.