Spelt bollur

Brauð og bakstur Vefjur og brauð

  • Miðlungs
  • spelt bollur
  • Vegan: Já
  • Viðbættur sykur: Nei
  • Mjókurlaust: Já
  • Eggjalaust: Já

Uppskrift

Einfaldar og góðar spelt bollur, frábærar nýbakaðar með (vegan) smjöri og góðu áleggi eins og niðurskornu grænmeti eða hummus.

  • 200g fínt spelt
  • 200g gróft spelt
  • 150g fræ blanda (t.d. sesam/sólkjarna/graskers)
  • 50g kókosmjöl
  • 4 tsk lyftiduft
  • 2 tsk matarsódi
  • 2 tsk sjávarsalt flögur
  • 4 msk sítrónusafi
  • 525 ml volgt vatn
Forhitið ofninn í 200°C og setjið bökunarpappír á ofnplötu.

Setjið öll þurrefnin saman í stóra skál og blandið saman með sleif.

Hellið nú vatninu og sítrónusafanum út í og blandið þar til deigið lítur út eins og grautur. Passið að hræra ekki of mikið, við viljum halda loftinu í deiginu.

Gott er að nota ískúluskeið til að móta bollurnar.
Raðið deigbollum á bökunarpappírinn og passið að hafa 5cm á milli svo þær hafi rými til að stækka í ofninum.

Bakið í 25 mín við 200°C.