Rifsberjahlaup
- Miðlungs
- Vegan: Já
- Hráfæði: Nei
- Viðbættur sykur: Já
Uppskrift
- 750g rifsber (með stilkum og grænum berjum)
- 250g lífrænn hrásykur eða kókospálmasykur
Hafið tilbúnar tandurhreinar krukkur og lok. Sumum finnst gott að hella sjóðandi vatni í krukkurnar og hafa þær heitar þegar rifsberjahlaupið er tilbúið.
Skolið rifsberin. Setjið berin og stilkana í stóran pott og merjið aðeins berin og hrærið í á meðan berin malla í u.þ.b. 10 mínútur. Sigtið nú vökvann frá og látið hann aftur í pottinn ásamt sykrinum. Látið sjóða í u.þ.b. 5 mínútur. Hellið á tandurhreinar krukkur. Það getur tekið hlaupið nokkra daga að stífna almennilega.
Athugið að í þessa uppskrift er notað minna magn af sykri en í hefðbundið hlaup. Þetta hlaup er ekki jafn sætt og ekki jafn stíft og klassískt hindberjahlaup.