Brownie hafrabaka

Bakstur Dögurður

  • Auðvelt
  • Morgunverðar hafrabaka brownie
  • Vegan: Já
  • Mjókurlaust: Já
  • Eggjalaust: Já

Uppskrift

Þessa haframjölsböku er gott að bera fram volga með þinni uppáhalds jógúrt og jafnvel ferskum berjum eða ávöxtum. Tilvalin í helgarbrunch.


  • 500 ml haframjólk
  • 100g agave síróp eða hunang
  • 100g hnetusmjör
  • 50g kókosolía eða ólífuolía
  • 1 tsk vanilla
  • 200g tröllahafrar
  • 50g kókosmjöl
  • 25g kakóduft
  • 1 ½ tsk lyftiduft
Byrjið á að hræra saman í skál: haframjólk, sírópi, hnetusmjöri, olíu og vanillu.

Bætið svo tröllahöfrum, kókosmjöli, kakódufti og lyftidufti út í skálina og hrærið saman.

Setjið í smurt form og bakið við 180°C í 30-35 mínútur.

Gott að bera fram með ferskum berjum og þykkri grískri jógúrt, eða vegan jógúrt frá Soyade, þessi hreina gríska er mjög góð.
Fyrir lúxus útgáfu er mjög ljúffengt að þeyta rjóma eða hafrarjóma og blanda varlega saman við jógúrtina.