Hafragrautur með hnetusmjöri

Grautar

  • 1 manns
  • Auðvelt
  • Vegan: Já
  • Viðbættur sykur: Nei
  • Mjókurlaust: Já
  • Eggjalaust: Já
  • Glútenlaust: Já

Uppskrift

Hafragrautur er sígildur morgunverður, enda hollur og bragðgóður. Hafið þið prófað að setja skeið af hnetusmjöri út á grautinn? Hvílíkur lúxus! Grauturinn verður saðsamari fyrir vikið og orkan endist aðeins lengur. Út á grautinn er gott að setja ávexti, t.d. epli, peru, banana, ber eða rúsínur. 

Hafragrautur fyrir einn

  • 1 dl lífrænt haframjöl
  • 2 dl vatn
  • ½ tsk kanill
  • salt af hnífsoddi
  • 2 tsk himneskt hnetusmjör, gróft
  • 1-2 tsk rúsínur (má sleppa)
  • uppáhalds ávöxturinn þinn (t.d. epli, pera, ber eða banani)
  • mjólk að eigin vali (t.d. jurtamjólk)

Setjið vatnið í pott og kveikið undir. Bætið höfrunum út í ásamt kanil og salti. Látið grautinn malla í 2-5 mín, eða þar til tilbúinn. Passið að hræra í annað veifið svo grauturinn brenni ekki. Setjið grautinn í fallega skál, stráið því sem hugurinn girnist yfir, ásamt vænni skeið af hnetusmjöri. Hellið smávegis jurtamjólk út á og njótið!