Lúxus grautur

Grautar

  • Hafragrautur með súkkulaði, fræjum, hnetum og berjum
  • Vegan: Já

Uppskrift

Lúxus hafragrautur fyrir sælkera
  • ½ dl haframjöl
  • 6 aprikósur, smátt saxaðar
  • 2 dl jurtamjólk, t.d. kókosmjólk
  • 1 dl ristuð fræ - t.d. sólblóma og graskerja 
  • 1 dl ristaðar hnetur - t.d. möndlur, heslihnetur, pekanhnetur
  • 2-3 msk sýrður hafrarjómi (t.d. Oatly)
  • 71% súkkulaðibitar, fínt skornir - magn eftir smekk

Setjið haframjöl og apríkósur í pott ásamt jurtamjólk. Sjóðið í 3-5 mínútur.

Létt ristið fræ og hnetur á pönnu á meðan grauturinn mallar.

Berið grautinn fram í fallegri skál, stráið ristuðum hnetum og fræjum yfir, setjið sýrða rjómann ofan á og saxið dökkt súkkulaði yfir. Frábært að setja nokkur góð ber út á líka.