Brauð m bökuðum baunum

Dögurður

  • Auðvelt
  • Ristað brauð m bökuðum baunum
  • Vegan: Já

Uppskrift

  • 2 brauðsneiðar
  • 1 krukka lífrænar bakaðar baunir
  • 1 laukur 
  • 1 msk olía
  • ferskur chilipipar eftir smekk, skorinn í þunnar sneiðar (verða þunnir hringir)
  • 2 tsk tómatpúrra
  • 1 tsk cumin duft
  • ½ tsk reykt paprika
  • ½ tsk sjávarsalt

    Kryddjurtamauk:

  • 1 búnt steinselja, grófu stilkarnir skornir af, restin smátt söxuð
  • 2 msk kapers
  • 3 msk sítrónusafi
  • hýði af 2 sítrónum
  • 2 hvítlauksrif, maukuð
  • ½ tsk chili flögur
  • 1 dl ólífuolía
  • smakkið til með smá sjávarsalti
    - Allt sett í blandara og maukað

Steikið lauk í olíu í 10 mínútur.

Bætið nú ferskum chilipipar út á ásamt tómatpúrru, cumin, reyktri papriku og salti og látið malla í 2-3 mínútur.

Setjið nú bökuðu baunirnar út á og látið malla í 3-4 mínútur, eða þar til baunirnar eru heitar í gegn.

Berið fram á ristuðu brauði með kryddjurtamauki.