Perugrautur

Grautar

  • 2-3 manns
  • Auðvelt
  • Perugrautur
  • Vegan: Já
  • Hráfæði: Já
  • Viðbættur sykur: Nei
  • Mjókurlaust: Já
  • Eggjalaust: Já
  • Glútenlaust: Já

Uppskrift

Þessi lúxus chiagrautur er bragðgóður og saðsamur og gefur góða orku inn í daginn. Okkur finnst frábært að útbúa grautinn kvöldið áður og eiga tilbúinn graut í krukku í morgunsárið. Grauturinn er líka mjög gott millimál/nesti.

  • ½ dl chiafræ
  • ½ dl haframjöl eða tröllahafrar
  • 3 dl mjólk að eigin vali (t.d. hafra, möndlu eða kókos)
  • ¼ tsk vanilla (dropar eða duft)
  • 1 msk kakóduft
  • 1 ½ msk hnetusmjör, gróft
  • 2 smátt saxaðar döðlur
  • 1-2 pera skorin í bita

Setjið allt hráefnið nema perubitana í skál eða krukku og hrærið vel saman, látið annað hvort standa í kæli yfir nótt, eða bara í  u.þ.b. 10 mínútur og hrærið aðeins með gaffli af og til. Eða, ef þið eigið hrærivél er mjög þægilegt að setja allt (nema peruna) í hrærivél og láta ganga í allt að 20 mín, þetta gefur góða áferð. Bætið svo ferskum perubitunum útá og njótið! Grauturinn geymist í lokuðu íláti í kæli í 2-3 daga, en gott er að bæta perunum ferskum út á í hvert sinn. Ef perurnar eru geymdar í grautnum fá þær svipaða áferð og niðursoðnar perur, sem sumum finnst gott, en það styttir aðeins geymsluþolið.