Súkkulaði álegg

Hummus og álegg

  • Auðvelt
  • súkkulaði álegg

Uppskrift

Ljúffengt súkkulaði álegg úr kjúklingabaunum, hnetusmjöri og döðlum. Tilvalið til að smyrja á maískökur eða hrískökur og raða ferskum ávaxtabitum ofan á, eins og banana, epli, jarðaberjum eða bláberjum.


  • 1 krukka kjúklingabaunir, vökvinn sigtaður frá 
  • 100g hnetusmjör eða tahini
  • 100g döðlur 
  • 100ml jurtamjólk 
  • 30g kakóduft 
  • 1 tsk vanilla 
  • ½ tsk sjávarsaltflögur 
  • 25g bráðið kakósmjör eða ólífuolía

Allt sett í matvinnsluvél og maukað saman. Líka hægt að nota kröftugan blandara, þá verður áleggið silkimjúkt.

Ef ykkur finnst að áleggið mætti vera örlítið sætara er hægt að bæta smá agavesírópi eða hunangi út í.