Hátíðlegt kartöflusalat
Uppskrift
Kartöflusalat sem passar vel með öllum hátíðlegum mat.
- 1 kg kartöflur
- ½ rauðlaukur, smátt saxaður
- 250g (1 krukka) Himneskt majónes - eða vegan mayo
- 250g sýrður rjómi - eða vegan sýrður rjómi
- 2 msk sætt sinnep
- 1 msk rifin piparrót
- 1 tsk malaður svartur pipar
- 1-2 tsk hrásykur
- 1 tsk eplaedik
- 1 tsk sjávarsaltflögur
Sjóðið kartöflurnar, kælið, afhýðið og skerið í þunnar sneiðar og setjið í stóra skál. (Það er líka hægt að nota forsoðnar kartöflur ef tíminn er naumur).
Afhýðið rauðlaukinn, saxið smátt og setjið í sömu skál og kartöflurnar.
Hrærið saman dressingunni, það er restinni af uppskriftinni. Hellið yfir kartöflurnar og laukinn.
Þetta salat geymist í 5-7 daga í kæli og verður bara betra með hverjum deginum.