Árstíðirnar


Linsusúpa með engifer

Haust Súpur Vetur

  • 4 manns
  • Auðvelt
  • Vegan: Já
  • Hráfæði: Nei
  • Mjókurlaust: Já
  • Eggjalaust: Já
  • Glútenlaust: Já

Uppskrift

Upplagt er að nota íslenskar gulrætur þegar þær fást, helst lífrænar, í þessa ljúfu súpu.  
          
  • 1 msk ólífuolía
  • 1 laukur, saxaður
  • 2 hvítlauksrif, pressuð
  • ½ tsk túrmerik
  • ½ - 1 tsk  broddkúmen (cumin)
  • 1 ½ msk engiferskot
  • 250 g gulrætur eða sætar kartöflur, brytjaðar
  • 250 g rauðar linsur (½ poki)
  • 1 lítri vatn
  • 1 msk Himneskur grænmetiskraftur
  • 1 ½ msk sítrónusafi
  • ½ tsk sjávarsaltflögur
  • salt og pipar til að smakka til
  • graskersfræ – ristuð og söltuð
  • 1 búnt kóríander, saxað, ef vill

Mýkið lauk og hvítlauk í ólífuolíu í u.þ.b. 5 mínútur í pottinum ásamt túrmerik, broddkúmeni og engiferskoti. Bætið svo gulrótum og linsum út í. 

Hellið vatni ásamt grænmetiskrafti út í. Látið suðuna koma upp, lækkið undir og leyfið að malla í u.þ.b. 20 mín. 

Blandið súpuna annað hvort í matvinnsluvél, eða með töfrasprota beint ofan í pottinn. 

Bætið nú sítrónusafa, salti og pipar út í. Smakkið til með meiri sítrónusafa, salti og ólífuolíu ef vill. Einnig má bæta meira engiferskoti út í ef þið viljið að súpan rífi aðeins í. 

Stráið ristuðum graskersfræjum og söxuðum ferskum kóríander yfir hvern skammt og berið fram með góðu brauði.