Salthnetubitar
- Miðlungs
- Vegan: Já
- Viðbættur sykur: Já
Uppskrift
Konfektgerð er skemmtileg fyrir páska. Þessir dásamlegu salthnetumolar eru sérlega einfaldir og ljúffengir.
- 200g döðlur, smátt saxaðar
- 2 ½ dl salthnetur eða ristaðar möndlur
- 1 ¼ dl hnetusmjör
- 1 msk kókosolía
- 1 msk agavesíróp
- 1 tsk vanilla
- ¼ tsk sjávarsalt
- 200g dökkt súkkulaði
Setjið döðlur, kókosolíu, síróp, vanillu og salt í matvinnsluvél og maukið. Bætið hnetusmjöri út í og blandið. Að síðustu bætum við hnetunum/ristuðu möndlunum út í.
Snjallt er að þrýsta deiginu í form og kæla í frysti. Skera síðan í passlega bita.
Bræðið dökkt súkkulaði yfir vatnsbaði.
Dýfið köldum hnetubitum í súkkulaðið með gaffli, leyfið auka súkkulaðinu aðeins að leka af áður en sett er á grind eða bökunarpappír til að stífna.
Geymist best í kæli eða frysti.