Uppskrift
- 2 ½ dl frosin sólber
- 1 banani
- ½ - 1 avókadó
- 1 tsk vanilluduft (eða dropar)
- 1 dl kókosmjólk (fyrir rjómakenndari skál er hægt að setja kókosmjólkurdósina inn í ísskáp í smá stund svo þykki hlutinn stífni, nota síðan bara þykka hlutann í uppskriftina).
Setjið kókosmjólkina, avókadó, banana og vanillu í blandara og blandið þar til silkimjúkt.
Hafið
blandarann í gangi, takið tappann úr lokinu og setjið sólberin ofan í
nokkur í einu. Þannig nær skálin að verða alveg silkimjúk. Ef blandarinn
ykkar er ekki mjög kröftugur er hægt að setja þetta
fyrst í matvinnsluvél og síðan í blandarann. Eða hafa þetta þynnra og
setja síðan inn í frysti smá stund svo skálin þykkni.
Setjið maukið í skál og skreytið með ferskum ávöxtum, heslihnetum og hampfræjum.