Árstíðirnar


Uppskrift

Fátt er betra en volgar nýbakaðar bollur, smurðar með jurtasmjöri sem bráðnar aðeins. Þessar bollur er tilvalið að bera fram með ilmandi grænmetissúpu.   

  • 3 dl volgt vatn, 37/40°C
  • 50g pressuger
  • 100g jurtasmjör
  • 1 tsk lífrænn hrásykur
  • ½ tsk sjávarsaltflögur
  • ½ kg fínt spelt, eða gróft til helminga
Skerið pressugerið í bita og setjið út í vatnið ásamt sykri, hrærið svo þetta leysist upp.



Bræðið jurtasmjörið við vægan hita, kælið svo það sé svona um 37/40°C , og hellið út í gerblönduna.



Bætið speltinu út í í nokkrum skömmtum, hnoðið vel saman, setjið deigið í skálina og látið hefast á volgum stað í um 30 mín.



Takið deigið úr skálinni og hnoðið aftur.

Formið um 18 miðlungsstórar bollur, setjið þær á bökunarplötu og látið hefast aftur í um 20/30 mín.

Bakið við 200°C í 15 mínútur.

Njótið!