Árstíðirnar


Graskers salat

Salöt og grænmeti Vor

  • Páska meðlæti
  • Vegan: Já

Uppskrift

Frábært meðlæti.

  • Páskasalat

  • ½ grasker, afhýtt og skorið í bita
  • 1 tsk garam masala
  • ¾ tsk sjávarsaltflögur
  • 1 msk ólífu eða kókosolía
  • 1 sæt kartafla, afhýdd og skorin í bita
  • 1 tsk karrý
  • ¾ tsk sjávarsaltflögur
  • 1 msk ólífuolía
  • 50 g spínat
  • 10 ólífur
  • 1 dl granateplakjarnar
  • 2 – 3 msk dukkah
  • Dukkah


  • 3 dl ristaðar heslihnetur

  • 1 dl ristuð sesamfræ
  • 1 dl ristuð graskerjafræ
  • 1 dl ristað kókosmjöl

  • 2 msk kóríanderfræ
  • 2 msk cuminfræ
  • ½ msk fennelfræ
  • 1 tsk svört piparkorn
  • 1 tsk sjávarsaltflögur

Páskasalat leiðbeiningar

Hitið ofninn í 180°C.

Setjið bökunarpappír á ofnpötu, látið graskerjabitana öðrum megin og sætkartöflubitana hinum megin.

Kryddið samkvæmt uppskrift og skvettið olíu yfir.

Bakið í 15-20 mín eða þar til grænmetið er gegnum bakað.

Setjið spínat í skál, bakaða grænmetið yfir ásamt granateplakjörnum og ólífum.

Blandið létt saman og stráið dukkah yfir (sjá uppskrift).


Dukkah leiðbeiningar

Hitið ofninn í 180°C.

Setjið allt nema saltið á ofnplötu og þurrristið í 6 mínútur.

Látið kólna í 5 – 10 mín.

Allt sett í matvinnsluvél og grófmalað.