Kókoskúlur m appelsínu
- Auðvelt
- Vegan: Já
Uppskrift
Kókoskúlur eru frábært nammi sem gott er að eiga með kaffinu. Gaman og einfalt að búa til með krökkum.
- 4 dl döðlur
- 2 dl kókosmjöl
- 3 msk hreint kakó
- ½ dl kókosolía
- 1 tsk appelsínudropar
- rifinn appelsínubörkur af einni appelsínu
- auka kókosmjöl til að velta uppúr
Setjið döðlur, kókosmjöl, kakó, kókosolíu og appelsínudropa í matvinnsluvél og blandið þar til orðið að mauki. Bætið nú helmingnum af appelsínuberkinum út í og blandið létt.
Gott er að geyma deigið í kæli í smástund áður en kúlurnar eru mótaðar.
Veltið kúlunum upp úr kókosmjöli og rifnum appelsínuberki.
Kúlurnar geymast vel í kæli eða frysti.