Súkkulaðibitakökur

Smákökur Vetur

  • Auðvelt
  • Vegan: Já
  • Hráfæði: Nei
  • Viðbættur sykur: Já
  • Mjókurlaust: Já
  • Eggjalaust: Já
  • Glútenlaust: Nei

Uppskrift

Í þessar dýrindis súkkulaðibitakökur notum við 71% súkkulaðið okkar, sem er fairtrade vottað og gefur ríkulegt súkkulaðibragð.
Hráefnið er lífrænt ræktað og uppskriftin hentar vegan lífsstíl. 

  • ⅔ b kókosolía, bráðin
  • ⅔ b kókospálmasykur
  • ⅔ b hrásykur
  • ½ b mjólk, t.d. möndlu eða haframjólk
  • 2 tsk vanilla
  • 2 ½ b spelt, fínt og gróft til helminga
  • 1 tsk vínsteinslyftiduft
  • 1 tsk matarsódi
  • ½ tsk sjávarsaltflögur
  • 200g 71% dökkt súkkulaði, saxað

Blandið saman kókosolíu og sykri, t.d. í hrærivél eða skál. Bætið möndlumjólkinni og vanillunni út í. Setjið þurrefnin út í og blandið létt. Að lokum bætist saxað súkkulaðið við, rétt blandið því lauslega út í. 

Fínt er að kæla deigið aðeins áður en þið mótið litlar kökur til að setja á bökunarpappír. Kökurnar breiða vel úr sér í ofninum svo passið að hafa nóg bil á milli. 

Bakið kökurnar í forhituðum ofninn við 175°C, í 12-14 mínútur. 

Takið bökunarpappírinn af ofnplötunni og látið kökurnar kólna áður en þið freistist til að smakka.