Berjabaka
- Miðlungs
- Vegan: Já
Uppskrift
Gott er að nota íslensk bláber og heimalagaða sultu í þessa böku, en hún er líka ljómandi góð með þeim berjum sem til eru hverju sinni.
Botninn
- 100g spelt
- 140g haframjöl
- 80g möndlur eða heslihnetur, malaðar
- 90g hrásykur
- 1 tsk kanill
- 1 tsk sjávarsalt
- 120 ml kókosolía
Setjið þurrefnin í skál og blandið
Bætið kókosolíunni út í og hnoðið þar til deigið klístrast saman
Notið ¼ af deiginu í hjörtun (setjið deigið milli tveggja bökunarpappírsblaða og rúllið deigið út með kökukefli, notið piparkökumót til að skera út hjörtu eða falleg mynstur)
Geymið hjörtun í kæli.
Þrýstið nú restinni af deiginu (¾) í botninn á 23 cm kökuformi
Fyllingin
- 200g bláberjasulta (eða meira ef þarf)
- 250g bláber, t.d. frosin eða nýtínd
Smyrjið sultu á botninn
Hellið bláberjum yfir sultuna
Leggið hjörtun nú yfir (eða myljið deig yfir)
Bakið við 190°C í 20 - 25 mínútur
Gott er að leyfa pæjunni að kólna aðeins og stífna áður en þið njótið hennar með þeyttum kókosrjóma eða góðum ís