Útivistar stykki

Orkustykki Sumar

  • Auðvelt
  • Útivistar bitar
  • Vegan: Já
  • Hráfæði: Já
  • Glútenlaust: Já

Uppskrift

Mjög einföld og góð orkustykki til að taka með í útivist. Sniðugt að nota þær hnetur, möndlur og fræ sem þið eigið til heima.

  • 250g aprikósur
  • 250g döðlur
  • 300g fræ og hnetur

Byrjið á að þurrrista fræin og hneturnar, í 3-4 mínútur á pönnu. Kælið.

Setjið ristuðu fræin/hneturnar í matvinnsluvél ásamt mórberjunum og grófmalið, t.d. með því að ýta á “pulse” nokkrum sinnum.
Hellið þessu í skál.

Setjið síðan döðlur og aprikósur í sigti og hellið sjóðandi vatni yfir (ekki láta standa í vatninu, bara hella yfir). Þetta gerir þær mýkri og auðveldari að eiga við. Skerið síðan í litla bita, setjið í matvinnsluvél og maukið.

Bætið maukinu út í skálina með fræjunum og hnetunum og hnoðið saman.

Látið bökunarpappír í form, þjappið deiginu í formið, skerið með hníf í passlegar stærðir og setjið inn í frysti í ca 2 klst. eða lengur, allt eftir því hversu þykkt þetta er. 1 ½ cm er mjög passleg þykkt.

Gott er að raða orkustykkjum í nestisbox og setja bökunarpappír á milli.