Árstíðirnar


Hjónabands sæla

Ávextir Bakstur Kökur Vor

  • Hjónabands sæla
  • Vegan: Já

Uppskrift

  • 200g spelt, fínt og gróft til helminga
  • 200g haframjöl
  • 175g hrásykur
  • 1 tsk lyftiduft
  • ½ tsk sjávarsaltflögur
  • ½ tsk kanill
  • 200g smjör, eða earthbalance eða smörbar, við stofuhita
  • 1 msk vatn
  • 2 dl rabarbarasulta
Setjið spelt, haframjöl, hrásykur, lyftiduft, sjávarsaltflögur og kanil í hrærivélaskál og blandið saman.


Bætið smjörinu út í og látið það blandast inn í mjölið.
Setjið vatnið út í til að ná deiginu saman. 


Hitið ofninn í 180°C.

Smyrjið form með olíu eða smjörlíki.

Þjappið um ¾ hluta af deiginu í botninn, smyrjið sultunni ofan á og myljið restina af deiginu yfir. 


Bakið í 35 mín við 180°C eða þar til sælan er orðin gullin brún og girnileg.
Fyrir heimagerða rabarbarasultu:
Rabarbarasulta